Alda, Eva, Edda, Lilja, Guðrún og Stína

Velkomin á bloggið!

17.04.2008 01:55:27 / ma2004

Jæja, þá er komið að því!

Ok nú látum við verða að því að hittast eitthvað og snæða góðan mat saman. 
Var að spá hvort það væri ekki sniðugt að reyna að finna dagsetningu stuttu eftir 15. maí þegar eðlilegt fólk (Lilja8|) er búið í prófum og svona. Ég held allavega að ég fari út úr bænum helgina 24-25 maí, kannski fyrr... Þá væri kannski fínt að allir segðu hvaða daga þeir væru lausir fram að því og við fyndum þá sennilega einhvern dag þar sem allir kæmust. Er það ekki sniðugt?
Svo er ekki vitlaust að koma með hugmyndir að góðum veitingastað:d
Þannig að koma svo stelpur:!:
Ég veit við höfum þetta í okkur:)

Kv. Alda Hrönn


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 13:48:05 / ma2004

HÆ STELPUR!

Ef þið eruð lausar laugardagskvöldið næsta, (20.10.07) þá langar mig endilega til þess að elda ofan í ykkur! Ef einhver kíkir inn á síðuna, látið þá fréttina berast og látið mig vita:)

Kv. Alda Hrönn 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 13:47:37 / ma2004

HÆ STELPUR!

Ef þið eruð lausar laugardagskvöldið næsta, (20.10.07) þá langar mig endilega til þess að elda ofan í ykkur! Ef einhver kíkir inn á síðuna, látið þá fréttina berast og látið mig vita:)

Kv. Alda Hrönn 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 11:29:10 / ma2004

Hittingur!!

Sælar skvísur.

Ég var að spá hvort þið væruð til í að taka frá sunnudagskvöldið 26. ágúst fyrir hitting. Við gætum verið heima hjá mér, eða farið á kaffihús eða eitthvað. Hvað segið þið? Ég er farin að sakna ykkar ansi mikið og hlakka til að sjá ykkur þegar ég kem suður.

Kveðja, Lija Rut.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 16:19:10 / ma2004

Dittinn & dattinn

Æji mér leiðist svo þetta lífleysi hér inni þannig ég ákvað að gæða síðuna örlitlu...ekki miklu þó....lífi:lol:

Á að vera læra undir þessi 2 próf sem ég er að fara í á morgun + það að ég ætti að vera í ræktinni......ætti s.s að vera lesa á hlaupabrettinu.....en sjáiði mig fyrir ykkur???:haha: ungfrú samviska 2007!!

En anyways er farin að sakna ykkar allra svo ódillis mikið og langar að fara hittast.....þar af leiðandi var ég að spá í að elda eitthvað gott fyrir okkur fljótlega (þar sem þið hinar svíkist alltaf um:$ ) þannig að endilega látið vita hvenær myndi henta ykkur helst..

Guðrúnan

p.s þið fáið sko allar refsistig fyrir lelega frammistöðu....en hún ég hún fær stjörnu:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 19:50:34 / ma2004

Sjálffingrun......

Ætli þetta orð yrði samþykkt sem nýyrði....yfir þið vitið hvað?? mér finnst þetta orð alveg jafn gott og gilt, lýsandi, þó ekki ósmekklegra en orðið góða sem ég ætla því að leysa af hólmi:haha:

Já eins og kannski þið sjáið þá LEIÐIST mér...er veik heima og enginn að hjúkra mér huhuhu og ákvað bara að gera enn eina lífgunartilraunina hérna! Stelpur ég sá ykkur sko fyrir viku og ég veit alveg að fingurnir ykkar eru ekkert límdir saman;) Svo var ég að velta fyrir mér hvort það hefði ekki verið einróma samþykkt að endurvekja þetta vikulega þið vitið má ekki nota orðið þá verður Eva reið??? ég kemst reyndar ekki þessa vikuna þar sem ég er á leiðinni á vit ævintýranna í sól og sumaryl....en ég skal taka að mér þið vitið hvað um leið og ég kem á klakann aftur! Aldrei að vita nema ég eldi eitthvað suðrænt og seiðandi handa ykkur;)

Jæja held að piparjúnkupizzan mín sé að verða tilbúin......hafðið það gott um páskana og borðið ógisslega mikið og reyniði að verða eins mjúkar og kynþokkafullar og ég hahahaha

Lov jú lov jú long time 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 11:23:16 / ma2004

Bloggsíða og hittingur.

Hæ hæ. Mér datt í hug að segja ykkur að ég stofnaði mína eigin bloggsíðu, svona svo ég geti sagt frá Afríkuferðinni minni. Slóðinn er http://blog.central.is/lra. Það er reyndar bara komin ein færsla, og ég veit ekki hvað ég á eftir að hafa mikinn tölvuaðgang, en ég ætla allavega að reyna að vera dugleg að skrifa, og setja inn myndir.

 Svo var ég líka að spá hvort ég geti hitt ykkur eitthvað áður en ég fer út á Miðvikudaginn. Ég fer í próf á mánudaginn, og Alda, Áslaug, Sigga Eva og Hildur ætluðu allavega að kíkja til mín um kvöldið og kannski einhverjar fleiri, þið megið endilega kíkja líka, það er svo langt síðan við höfum hittst.

Ég vona allavega að ég sjái ykkur þá.

Kveðja, Lilja Rut.  


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 17:47:03 / ma2004

Jó bitches

Jæja stelpur mínar nú hef ég tekið þá ákvörðun að þetta gangi ekki lengur og hef því ákveðið að bjóða ykkur í heimsókn í næstu viku...annað hvort fimmtudaginn eða föstudaginn....endilega látiði vita hvor dagurinn hentar betur....koma svo ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 16:55:23 / ma2004

Fyrirsögn

Hvert fór sú hugmynd að finna einhvern dagskrárlið til að horfa á saman? Mér finnst allavega að við ættum að finna okkur ástæðu til að hittast oftar:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 13:09:17 / ma2004

Mein geburtstag;)

Ég ætla að baka köku:haha: endilega komiði og fáiði ykkur smá gott í mallann....

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 13:26:47 / ma2004

Sjónvarpsdagskráin

Hæ hæ, mér datt í hug að gera smá skoðanakönnun. Mér finnst nefnilega alveg tilvalið að velja einhvern sjónvarpsþátt sem við getum nýtt til að hittast og horfa á saman eins og í fyrra. En spurningin er bara hvaða þætti eigum við að fylgjast með núna?
Ég er til í allt sem ekki er sýnt á miðvikudagskvöldum. (Þá er ég á kóræfingum).

Komið nú með góðar tillögur!!

Kveðja, Lilja Rut.

» 6 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 01:04:54 / ma2004

Tillaga að góðu kvöldi;)

Hvað segiði elskurnar? Er ekki hugur í konum að láta verða að því að hittast (skammarlegt að við séum farnar að hittst í mesta lagi einu sinni  í mánuði)... Hvernig lýst ykkur á að hittast á föstudaginn bara svona í seinna lagi og elda eittvað saman, já eða panta mat þið ráðið, og sitja svo að spjalli og sambli eftir það:haha: þar til allar eru orðnar ligeglad og kíkja þá jafnvel niðrí sin City og láta ljós okkar skína:lol: ??

Endilega komiði með hugmyndir...ég verð ekkert súr þó þið dissið mína:lol:

Kiss kiss kiss

Gaflarinn8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 12:36:53 / ma2004

Halló vinkonur

Ég verð nú bara að segja það að ég fer að verða að fá sönnun þess að við séum vinkonur ennþá:cry:  Hvernig væri að við myndum hittast eitt föstudags- eða laugardagskvöld og fara í bæinn saman, gætum hist hjá mér fyrst (ekki langt að labba í bæinn8) ) Reynið bara að finna tíma sem hentar ykkur og svo getum við púslað saman. Ég meina við verðum að drífa okkur áður en allt prófastressið hefst:!:
Koma svo, kv. Alda Hrönn

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 12:05:58 / ma2004

Helgin

Hvernig líst ykkur á að skella okkur saman á oktoberfest?  ;)Þar gæti Eva til dæmis fundið fullt af frambærilegum karlmönnum8):!:
Kv. Alda

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 23:32:29 / ma2004

Halló halló pæs!!!

ZUP??? hvað segiði var ekki meiningin að endurlífga þessa hittinga hjá okkur stelpur??? ég mótmæli harðlega hvað við hittumst sjaldan:whut: það er sko alveg sama hvað er mikiða ða gera hjá manni...maður á sko alltaf að geta fundið smugu til að hitta vinkvennur sínar og hana nú!!!

Ég legg hér með til að við finnum okkur eitthvert gott kvöld í viku til að hafa hittingana og búum svo til svona lista og skiptumst á að hafa heimboð...þarf ekkert að vera mikið mál og engin fyrir höfn, þarf engar kræsingar eða neitt svoleiðis....komumst sæmilega af án þeirra:lol:

Endilega kommentið skvísos og segið hvað ykkur finnst og hentar best

luts of luv


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3